Hótel Liberty Mílanó - fjögurra stjörnu hótel mílanó - hótel mílanó - hótel í mílanó
Bóka hér 


Vefbókun:
Dagsetning:
Nætur:
Fullorðnir:
Börn:    
Aðgangsnúmer:
Hætta við Valkostir/IATA
Mílanó og nágrenni
Hótel Liberty er staðsett á besta stað, nálægt fjölda áhugaverðra staða og það er auðvelt að komast þangað úr öllum áttum. Við erum staðsett í Porta Romana, gömlu og einkennandi hverfi fyrir Mílanó sem frægt er fyrir svalahús sín og Navigli-skipaskurðina, steinsnar frá hinum sanna miðbæ og háskólanum virta L. Bocconi.

Veitingastaðir Úrval veitingastaða er í göngufjarlægð frá hótelinu ef gestir vilja ekki fara langt frá því. Einnig er stutt ganga yfir í Navigli-hverfið þar sem finna má fjölmarga veitingastaði af öllum gerðum.

Afþreying, skemmtun, verslun og menning Þökk sé nálægð okkar við Navigli, þá er um margt að velja ef eiga á ánægjulegt kvöld, eins og að vafra um hin fjölmörgu listhús í hverfinu eða fara í bátsferð til að uppgötva náttúru- og sögulega fegurð borgarinnar.

Ef hugurinn leitar hins vegar innst í miðbæjarkjarnann er nóg að taka leigubíl í nokkrar mínútur niður á Piazza del Duomo, þar sem úir og grúir af margvíslegum veitingastöðum, kvikmyndahúsum, verslunum, leikhúsum, söfnum og markverðum sögulegum, listrænum og menningarlegum menjum.

Aðrir áhugaverðir verslunarstaðir eru Corso Buenos Aires eða Corso Vercelli, einungis nokkrar mínútur í burtu.
Ekki má gleyma að almenningssamgöngur eru mjög nálægt hótelinu svo auðvelt er að ferðast um alla borgina. Fyrir framan hótelið eru sporvagnar niður á piazza del Duomo og miðbæjarlestarstöðina. Í 500 metra fjarlægð er neðanjarðarlestin (lína 3) niður í miðbæ og á sýningar í Rho-Pero (skipta í Duomo við rauðu línuna. Ferðatími í sýningarhúsið er um 45 mínútur).

Og fyrir þá sem trimma er Ravizza almenningsgarðurinn bara handan við hornið!